Nýjast á Local Suðurnes

Keflavík Meistarar meistaranna

Mynd: KKÍ

Keflavík vann öruggan sigur á Skallagrím 93-73 þegar liðin mættust í Meistarar meistaranna í gærkvöldi, en leikið var í Keflavík. Keflavíkurstúlkur voru með yfirhöndina nánast allan leikinn.

Stigahæstar hjá Keflavík voru þær Birna Valgerður Benónýsdóttir með 18 stig, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 18 stig og 4 fráköst, Brittanny Dinkins 16 stig og 6 fráköst og Thelma Dís Ágústdóttir 12 stig, 4 fráköst.