Nýjast á Local Suðurnes

Þetta eru Costcovörurnar sem eru í boði í Reykjanesbæ á Costco-verðum

Verslanir Extra bjóða upp á tuttugu vinsælar Costco-vörur á Costco-verði. Fyrirtækið rekur verslun við Hafnargötu, þar sem verslunin Iceland var áður til húsa.

Á meðal þeirra Costco-vara sem Suðurnesjamönnum stendur til boða að kaupa verða eldhúspappír, klósettrúllur, þvottaefni, gosdrykkir og ávaxtasafar, en allar þær vörutegundir sem verslunin býður upp á frá Costco má sjá hér fyrir neðan.