sudurnes.net
Unnt að sjá hljóðmælingar á Keflavíkurflugvelli í rauntíma - Local Sudurnes
Isavia kynnti hljóðmælingakerfi sem verið er að setja upp á Keflavíkurflugvelli á íbúafundi, sem haldinn var í Reykjanesbæ um miðjan maí. Mælingarnar sem um ræðir verða opnar almenningi á vef Isavia og þannig munu íbúar betur geta fylgst með hljóðstigi frá flugumferð og gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði. Kerfið er sett upp af danska fyrirtækinu Brüel & Kjær og hefur verið unnið að því um nokkurra mánaða skeið. Nú hefur fyrsti fasi kerfisins verið settur í loftið og þar er unnt að sjá hljóðmælingar frá einum mælanna í rauntíma, en í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar. Tenging við flugupplýsingar hefur tafist í forritun en búist er við að þær verði komnar inn í byrjun júlí. Hér er að finna hlekk á hljóðmælingarnar: https://sentinel.bksv.com/isa/testaw Bruel & Kjær býður einnig upp á app fyrir iPhone og Android: Android: https://play.google.com/store/apps/details?id=dk.bksv.ems.noisesentinel iPhone: https://appsto.re/is/ybUa_.i Meira frá SuðurnesjumFiskivagninn verður á Fitjum um ókomna tíð – “Girðum í brók og höldum áfram inn í veturinn.”Þrír nýir veitingastaðir opna á KEFBirta tillögur að því hvernig mannvirkin koma til með að líta út í HelguvíkEkkert Njarðvíkurbingó en hlaðið í lukkuleikJólagjafirnar í ár – Allt er nú til á veraldarvefnumEndaði á toppnum [...]