Erlendur ferðamaður á hraðferð fékk 100 þúsund króna sekt
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan akstur í vikunni mátti reiða af hendi 97.500 krónur í sekt. Þetta var erlendur ferðamaður og mældist bifreið hans á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk hans voru tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.
Þá hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var með kannabis í fórum sínum. Loks voru nokkrir sektaðir fyrir að aka á nagladekkjum.