sudurnes.net
Erlendur ferðamaður á hraðferð fékk 100 þúsund króna sekt - Local Sudurnes
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan akstur í vikunni mátti reiða af hendi 97.500 krónur í sekt. Þetta var erlendur ferðamaður og mældist bifreið hans á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk hans voru tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Þá hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var með kannabis í fórum sínum. Loks voru nokkrir sektaðir fyrir að aka á nagladekkjum. Meira frá SuðurnesjumHundrað þúsund kall í sekt fyrir hraðaksturTekinn á tæplega 160 km hraða – Hefur aldrei öðlast ökuréttindiErlendur á ofsahraða undir áhrifumSinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu – Aka þurfti lögreglubifreið utan í bifreiðinaFær 250.000 króna sekt fyrir hraðaksturÁ von á 130 þúsund króna sekt eftir hraðaksturStöðvuðu 150 ökumennMeintir sterar og meint kannabisefni gert upptækt eftir húsleitTekinn við hraðakstur á brautinni – Greiddi 130.000 króna sekt á staðnumStöðvaður á 176 km. hraða – Sviptur og fær 150 þúsund króna sekt