Ráðherra úthlutaði 96 milljónum króna – 200 þúsund krónur til Suðurnesja

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag rúmlega níutíu og sex milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 169 verkefna og rannsókna. Lýðheilsusjóður hefur það hlutverk að stuðla að heilsueflingu og forvörnum ásamt því að styrkja lýðheilsustarf um land allt. Í dag var styrkjum úthlutað til fjölbreytta verkefna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Tvö verkefni sem tengist Suðurnesjum beint fengu styrk að þessu sinni, en þeir styrkir runnu báðir til leikskóla. Leikskólinn Holt í Innri-Njarðvík fékk 50.000 króna styrk vegna verkefnisins Hugarfrelsi-geðrækt og Leikskólinn Garðasel fékk 150.000 króna styrk vegna verkefnisins Heilsueflandi leikskóli
Við auglýsingu eftir umsóknum árið 2018 var m.a. lögð áhersla á aðgerðir til eflingar geðheilsu, árangursríkar áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði, aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu, verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu og verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar, segir í tilkynningu. Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær féllu að hlutverki sjóðsins sem er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 og lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins.
Lista yfir þau verkefni sem hlutu styrk og nánari upplýsingar um úthlutunarreglur má finna hér fyrir neðan: