Nýjast á Local Suðurnes

Mikið tjón í eldsvoða

Eng­inn var inni í bygg­ing­u sem kviknaði í á gatnamótum Víkurbrautar og Hrannargötu í Keflavík í dag og eng­in slys urðu á fólki. Eignatjón var hinsvegar mikið.

Það voru bíl­ar, felli­hýsi, tjald­vagn­ar og bú­slóðir í húsnæðinu, að sögn slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja við mbl.is. Hann gerir ráð fyr­ir því að þetta sé veru­lega mikið tjón. Hann seg­ir jafnframt að bygg­ing­in hafi verið byggð í nokkr­um hlut­um og eld­ur­inn hafi verið í elsta hluta henn­ar.