Nýjast á Local Suðurnes

Afþakkaði styrk úr menningarsjóði – Fjármununum úthlutað aftur

Alexandra Chernyshova afþakkaði styrk að upphæð kr. 150.000 sem hún hafði fengið úthlutað úr menningarsjóði Reykjanesbæjar í vor. Þetta kemur fram í fundargerð Menningarráðs Reykjanesbæjar, en styrknum var hafnað vegna þess að ekki tókst að koma á fót stúlknakór eins og hún hafði áætlað.

Ráðið ákvað því að endurúthluta upphæðinni til eftirfarandi aðila sem sent höfðu inn styrkumsóknir eftir að fyrri úthlutun fór fram:

A) Styrkbeiðni frá Vox Arena, leikfélagi Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ráðið leggur til að hópurinn fái kr. 100.000.
b) Styrkbeiðni frá undirbúningshópi hátíðartónleika í tilefni 500 ára siðbótarafmælis sem haldnir voru í Stapa. Ráðið leggur til að hópurinn fái kr. 50.000.