sudurnes.net
Enn eitt jafnteflið hjá Keflavík - Local Sudurnes
Keflvíkingar eru enn í fjórða sæti Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu eftir 0-0 jafntefli gegn Selfossi á Jáverk-vellinum í kvöld. Þetta var sjöunda jafntefli Keflvíkinga í sumar, en liðið hefur unnið fimm leiki og tapað einum. Heimamenn voru sterkari aðlilinn í fyrri hálfleik en Keflvíkingar fengu þó besta færið á 23. mínútu, þegar Sigurbergur Elísson brenndi af vítaspyrnu, eftir að knötturinn hafði farið í höndina á varnarmanni Selfyssinga. Keflvíkingar sóttu nokkuð stíft í síðari hálfleik en inn vildi boltinn ekki og markalaust jafntefli verða að teljast sanngjörn úrslit í tíðindalitlum leik. Meira frá SuðurnesjumSteindautt jafntefli hjá Huginn og KeflavíkKeflavíkursigur í grannaslagForseti Íslands tekur þátt í kyndilhlaupi lögreglumanna í ReykjanesbæKeflvíkingar í öðru sæti B-deildar Fótbolta.net mótsinsEinar Árni verður áfram í Þorlákshöfn – “Vona að uppeldisfélaginu gangi vel”KFR tók Víði í kennslustund í fótbolta – Reynir með sigur á KáraTap hjá Njarðvíkingum á SeltjarnarnesiSannfærandi hjá Keflavík gegn HaukumSlappir Grindvíkingar töpuðu gegn GróttuNjarðvík náði jafntefli gegn toppliðinu