Nýjast á Local Suðurnes

Brotist inn í íbúðarhúsnæði og verkstæði

Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina og verkfærum að verðmæti 300 – 350 þúsund stolið.

Áður hafði verið brotist inn í verkstæði og þaðan stolið talsverðu af verkfærum, einkum hleðsluborum. Hafði útidyrahurðin verið spennt upp og sá eða þeir sem þar voru að verki komist inn með þeim hætti.

Lögreglan rannsakar málin.