Nýjast á Local Suðurnes

Teiknimyndafígúrur til sýnis á menningarviku í Grindavík

Fannar Þór Bergsson hefur opnað sýningu sína á leir fígúrum á bókasafninu í Grindavík, í tilefni af menningarviku sem nú er haldin í bænum. Sýningin verður opin á milli kl. 11:00-16:00 í dag og sunnudag milli kl. 13:00-16:00 og svo á opnunartíma safnsins í næstu viku.

Fannar er leirlistamaður og eigandi „Leira meira” og tengjast fígúrurnar allar allar teiknimyndum á einn eða annan hátt. Hægt er að skoða verk Fannars á Facebook-síðu Leira meira en þar er úrval af allskyns fígúrum til sölu.