Nýjast á Local Suðurnes

Rannsökuðu framsækið skólaumhverfi Stapaskóla

Á vordögum tóku starfsmenn, nemendur og arkitektar þátt í Evrópskri rannsókn á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem snýr að því að skoða framsækið skólaumhverfi. Markmiðið var að greina hvort og þá hvernig áætlanir um framsækið skólaumhverfi hafi náð fram að ganga út frá ólíkum sjónarhornum.

Framkvæmdin fór þannig fram að hópur fólks gekk um skólann með matslista og skráði hjá sér athugasemdir. Í kjölfarið var haldinn fundur og rætt saman.

Verkefni heitir Collaborative Redesign with schools og ef þið viljið kynna ykkur betur þetta betur er hægt að smella  hér.

Nú er komin út skýrsla rannsóknarinnar. Við hvetjum ykkur að skoða hana. Þið farið inn á hana hér.