Nýjast á Local Suðurnes

Ekki til aur fyrir heimtaug

Beiðni knattspyrnudeildar Keflavíkur um að láta leggja heimtaug að knattspyrnuvellinum við Hringbraut var tekin fyrir á fundi íþrótta- og tómstundaráðs á dögunum, en knattspyrnudeildin leitast eftir að geta notað upphitunarkerfi sem lagt var undir völlinn árið 2010 og hefur aldrei virkað sem skyldi.

Kostnaðaráætlun sem að skrifstofa íþrótta- og tómstundamála hefur kallað eftir gerir ráð fyrir að kostnaðurinn sé um 5.000.000 krónur.

Ráðið er meðvitað um að tímabilið í knattspyrnu er sífellt að lengjast í báða enda og besti kosturinn er að hafa upphitun ef að við myndum lenda í mjög köldum vetri. Ráðið hefur á hinn bóginn ekki fjármagn á fjárhagsáætlun 2021 og þessi framkvæmd er ekki inni í fjárhagsramma fyrir árið 2022, segir í fundargerð.

Íþrótta- og tómstundaráð vill leggja áherslu á að HS Orku völlurinn hefur alltaf verið með bestu grasvöllum landsins og ÍT vill koma sérstökum þökkum til þeirra starfsmanna sem hafa haldið utan um þau mál fyrir ráðið á undanförnum árum.