Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Reykjanesbæ
Maðurinn sem lést í vinnuslysi við Fitjabraut í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag hét Ólafur Pétur Hermannsson.
Þetta segir í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurnesjum. Ólafur var fæddur árið 1961 og var búsettur í Garði. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvo syni.