Nýjast á Local Suðurnes

Landslið tónlistarmanna treður upp á árshátíð Reykjanesbæjar

Búist er við að yfir eitt þúsund manns mæti og geri sér glaðan dag á árshátíð Reykjanesbæjar, sem haldin verður í öllum sölum Hljómahallar í kvöld. Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins hefur ekki verið haldin undanfarin tvö ár vegna Covid-faraldursins.

Skemmtiatriðin verða ekki af verri endanum, en á meðal þeirra sem koma fram eru GDRN, Bríet, Regína Ósk, Jón Jónsson, Frikki Dór og Aron Can.