Bein útsending frá opnum fundi um málefni United Silicon
Opinn fundur Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um málefni kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík hefst klukkan 9:30 í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Gestir á fundinum verða: Björt Ólafsdóttir, Umhverfis- og auðlindaráðherra, Helgi Þórhallsson forstjóri, Kristleifur Andrésson og Þórður Magnússon, frá United Silicon. Þá munu fulltrúar frá Íbúasamtökum á Reykjanesi, bæjarráði Reykjanesbæjar og Umhverfisstofnun sitja fundinn.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.