Nýjast á Local Suðurnes

Keflvíkingar Íslandsmeistarar kvenna í körfuknattleik

Keflavík varð í kvöld Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna, eftir öruggan sigur á Snæfelli, 70-50, á heimavelli. Þetta er sextándi Íslandsmeistaratitill liðsins.

Sigurinn í kvöld var öruggur, eins og lokatölurnar bera með sér, en Keflvíkingar, sem leiddu allan leikinn, sýndu oft á tíðum ótrúlega flottan varnarleik og héldu þannig Íslandsmeisturum síðustu þriggja ára í aðeins 50 stigum. Ariana Moorer átti fínan leik og skoraði  29 stig og tók 19 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir kom næst með 13 stig.