Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 2100 skjálftar á Reykjanesi

Mynd: Visit Reykjanes

Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga heldur áfram og mældust yfir 2100 jarðskjálftar þar í síðustu viku. Stærsti skjálftinn varð þann 26. ágúst kl. 16:15, 4,2 að stærð við Fagradalsfjall og fannst hann á stórum hluta af Suðvesturhorni landsins. 

Í gærkvöldi varð jarðskjálfti af stærð 3,0 rétt vestan við Kleifarvatn á Reykjanesskaga. Tilkynningar hafa borist Veðurstofunni um að hann hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu.