Nýjast á Local Suðurnes

Tveir handteknir eftir að hafa hent fíkniefnum út úr bifreið

Farþegi í bifreið kastaði fíkniefnum út úr henni þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni hennar í vikunni. Ökumaðurinn hafði ekki virt stöðvunarskyldu og því gáfu lögreglumenn honum merki um að stöðva bifreiðina. Við það opnaðist farþegahurð hennar og út var kastað poka sem geymdi kannabisefni. Ökumaðurinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Báðir mennirnir voru því handteknir.