Rétt rúmlega 100 í sóttkví á Suðurnesjum
![coronavirus covid korona](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2020/03/coronavirus-4914026_1280.jpg?resize=620%2C264)
Fá ný kórónuveirusmit hafa greinst á Suðurnesjum undanfarna daga, en nú eru 77 einstaklingar smitaðir af veirunni á Suðurnesjasvæðinu samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.
Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, en nú sæta 111 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en voru vel á fimmta hundraðið þegar mest var.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.