Nýjast á Local Suðurnes

Rétt rúmlega 100 í sóttkví á Suðurnesjum

Fá ný kórónuveirusmit hafa greinst á Suðurnesjum undanfarna daga, en nú eru 77 einstaklingar smitaðir af veirunni á Suðurnesjasvæðinu samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.

 Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, en nú sæta 111 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en voru vel á fimmta hundraðið þegar mest var.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.