Nýjast á Local Suðurnes

Ekkert smit síðan á föstudag – Þrettán í einangrun

Ekki hefur bæst í hóp Covid-smitaðra á Suðurnesjum síðan á föstudag, þannig að 77 einstaklingar hafa hingað til smitast af veirunni á Suðurnesjasvæðinu samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.

 Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, en nú sæta 31 einstaklingur sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, þar af eru 13 í einangrun, en alls voru vel á fimmta hundrað Suðurnesjamenn í sóttkví þegar mest var.
Enn er hægt að mæta í sýnatöku á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og er fólk hvatt til að gera svo, finni það fyrir einkennum. Stofnunin birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.