Nýjast á Local Suðurnes

Stal 18 þúsund króna kampavínsflösku – Greiðir eftir mánaðarmót

Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að því um helgina að stela kampavínsflösku á skemmtistað í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að flaskan sú arna kostaði átján þúsund krónur.

Maðurinn iðraðist sárlega þegar lögregla ræddi við hann og kvaðst ætla að greiða fyrir flöskuna, sem hann hafði þá opnað. Greiðsluna kvaðst hann þó ekki geta innt af hendi fyrr en eftir mánaðarmót.