Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær um skýrslu Rögnunefndar: Furðulegt að ekki voru skoðaðir augljósir kostir

Bæjarráð Reykjanesbæjar gerir athugasemdir við þá aðferð sem beitt var þegar skoðaðir voru kostir fyrir staðsetningu innanlandsflugs og koma fram í skýrslu svokallaðrar Rögnunefndar. Telja verður furðulegt að ekki voru skoðaðir þeir kostir sem augljósastir eru fyrir innanlandsflug þ.e.  Reykjavíkurflugvöllur og  Keflavíkurflugvöllur.

“Að komast að þeirri niðurstöðu að rétt sé að staðsetja nýjan flugvöll í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli með tilheyrandi kostnaði, er auðvitað óskiljanlegt, þegar nánast allir innviðir fyrir innanlandsflugið eru tilbúnir í Keflavík.” Segir í fundargerð bæjarráðs.

Bæjarráð áréttar fyrri skoðun sína að ef og þegar ákveðið verður að flytja innanlandsflugið frá Reykjavík er Keflavíkurflugvöllur skynsamlegasti kosturinn.