Nýjast á Local Suðurnes

Glaðningur fyrir þann sem skilar stjörnunni

það eru ótrúlegustu hlutir sem geta komið upp á í sjoppubransanum, eins og dæmið hér fyrir neðan frá Stapagrilli í Innri-Njarðvík ber vitni um, en þar lenti hluti af ísvelinni, svokölluð stjarna, líklega í dollu af bragðaref sem einhver kúnninn splæsti í.

Eins og gefur að skilja vilja þau á Stapagrilli fá stjörnuna sína aftur og bjóða glaðning þeim sem kemur henni til skila.

Tilkynningin frá Stapagrilli á Facebook:

🍦! Tilkynning ! 🍦COLLECT THEM ALL ⭐️
Eða kannski ekki alveg..😂
Er ekki ehv sem kallast sá á fund sem finnur ?
Ísstjarnan á ísvélina okkar er rosa lítið heimakær og strauk að heiman í kvöld ofan í bragðaref hjá kúnna. Hún er einstaklega ævintýragjörn í þetta skiptið hjá okkur en á bara heima á ísvélinni.
Ef sú sem fékk hana með heim í kvöld hefur samband þá eru við með glaðning fyrir þig 🍦😝
Kv. Staff Stapagrills