Nýjast á Local Suðurnes

Spá óveðri á miðvikudag – Reykjanesbrautin verður varasöm

Veðurstofan varar við óveðri á morg­un, miðviku­dag, búast má við að á milli klukkan 6 til 8 í fyrra­málið verði á bilinu 30-35 m/​s vind­hraði í hviðum á Reykja­nes­braut og varar Vegagerðin við því að aðstæður geti verið varasamar þegar vatn safn­ast í hjól­för sam­fara hvassviðri þvert á veg­inn.

Gangi spáin eftir mun læg­ja flljótlega eft­ir há­degi, en hvess­ir allhressilega aft­ur síðdeg­is. Spáð er stormi eða roki annað kvöld. Þá verður suð- eða suðsuðaustanátt með mikilli rigningu um tíma.