Nýjast á Local Suðurnes

Malbikunarframkvæmdir á fimmtudag

Mynd: Facebook / Loftorka

Stefnt er að því að malbika eftirfarandi vegkafla, Stapabraut – milli Trönudals og Geirdals, í Innri-Njarðvík, á morgun fimmtudag. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 09:00 til 18:00.

Viðeigandi öryggis- og umferðarmerkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur. Búast má við lítils háttar umferðartöfum.

Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem kunna að skapast af framkvæmdunum, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.