sudurnes.net
Malbikunarframkvæmdir á fimmtudag - Local Sudurnes
Stefnt er að því að malbika eftirfarandi vegkafla, Stapabraut – milli Trönudals og Geirdals, í Innri-Njarðvík, á morgun fimmtudag. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 09:00 til 18:00. Viðeigandi öryggis- og umferðarmerkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur. Búast má við lítils háttar umferðartöfum. Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem kunna að skapast af framkvæmdunum, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Meira frá SuðurnesjumLoka fyrir umferð vegna framkvæmdaLoka hluta Hafnargötu vegna framkvæmdaSara GK komin á flot – Sjáðu myndirnar!Íbúar í Höfnum og á Ásbrú verða án rafmagns í klukkustundMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLoka fyrir umferð um FaxabrautLoka fyrir heitt vatn á stóru svæðiRafmagnslaust í hluta Innri – NjarðvíkurNý gata í miðbænum – Svona mun Skólatorg líta út!Rafmagn tekið af hluta Grindavíkur í kvöld