Nýjast á Local Suðurnes

BaseParking kvartar undan Isavia – Sektaðir fyrir að nota skammtímastæði við flugstöðina

Forsvarsmenn fyrirtækisins BaseParking ehf. hafa lagt inn kvörtun til samkeppniseftirlitsins vegna framkomu Isavia í þeirra garð. Þeir segja ríkisfyrirtækið leggja stein í götu þeirra við hvert tækifæri, meðal annars með tilraunum til að leggja sektir á fyrirtækið fyrir að nota stæði við flugstöðina og að bjóða upp á sömu þjónustu og BaseParking geri.

Frá þessu er greint á Vísi.is, en þar segja forsvarsmenn BaseParking að Isavi reyni að ýta þeim út til að sitja eitt að þessum markaði.

„Þeir eru að leggja stein í götu okkar, það er augljóst. Þeir hafa reynt að reka okkur frá flugstöðvarbyggingunni, reynt að sekta okkur fyrir að nota í mjög skamma stund bílastæði nálægt flugvellinum og svo í ofanálag eru þeir farnir að bjóða upp á nákvæmlega sömu þjónustu og við erum að veita.“ Segir í frétt Vísis.