Nýjast á Local Suðurnes

Lúxusrútuferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur ákveðið að hefja beinar áætlunarferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar næsta vor. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Áætlun Gray Line Airport Express verður með þeim hætti að brottför verður frá Keflavík kl. 17:00, komið til Akureyrar um kl. 23:00. Þaðan verður haldið kl. 23:15 og komið til Keflavíkur kl. 05:15. Flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast þannig norður fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.

Fram kemur í tilkynningunni að eingöngu verði lúxusrútur úr flota fyrirtækisins notaðar á leiðinni. Þær séu með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internettengingu. Tveir bílstjórar verði ávallt með í för til að tryggja gæði þjónustunnar.

„Þessi Airport Express áætlun þýðir að farþegar geta verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda. Á sama hátt geta þeir sem koma að norðan náð morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli og sparað sér þannig að fara suður daginn áður,“ segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Gray Line.

Á leiðinni verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Fargjald aðra leið verður 11.000 milli Akureyrar og Keflavíkur, Varmahlíð 10.000 kr., Blönduós 9.000 kr., Staðarskáli 7.000 kr. og Borgarnes 4.500 kr.