Nýjast á Local Suðurnes

Töluverð röskun á umferð vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda við hitaveitu þarf að grafa skurð í götu við gatnamót Fagragarðs og Hamragarðs þar sem lögn þverar Fagragarð. Líklegt þykir að töluverð röskun verði á umferð um Fagragarð á meðan á framkvæmd stendur, reynt verður að halda einni akrein opinni eins og kostur er.

Áætlaður framkvæmdartími er í dag, fimmtudaginn 29.02.24 frá kl. 8:00 til 22:00.

Leitast verður við að loka skurði eins fljótt og unnt er, segir í tilkynningu.

Nánari útskýring á framkvæmdasvæði má sjá á myndinni hér fyrir neðan.