Nýjast á Local Suðurnes

Aðventugarðurinn opnar á ný

Aðventugarðurinn opnar á ný á Þorláksmessu, föstudaginn 23. desember, það verður jafnframt síðasti opnunardagurinn þetta árið.

Á Þorláksmessu verða skemmtilegu Jólasveinar Aðventugarðsins á vappi og heilsa upp á börnin, Grýla gamla móðir þeirra lætur líka sjá sig ásamt félögum frá Leikfélagi Keflavíkur úr Ronju ræningjadóttur. Risastór ísbjörn mætir á svæðið og býður upp á myndatökur og faðmlög. Í litla sviðskofanum okkar verða skemmtilegar uppákomur frá kl. 18:00 til 21:00 þar sem fram koma með annars Lúðrasveit Tónlistarskólans, Brynja og Ómar og Kósýbandið. Ratleikur Aðventugarðsins verður á sínum stað í síðasta skiptið sem við mælum með að allir taki þátt í ásamt því að skoða fallega Leikskólalundinn okkar, segir í tilkynningu.

Í sölukofunum verður boðið upp á jólaglögg, heitt kakó, sykurpúða, handverk, heimasaumaðar vörur og annan jólavarning. Aðventusvellið verður opið á Þorláksmessu og frekari opnunartíma má sjá á adventusvellid.is.

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar veitir viðurkenningar fyrir jólahús Reykjanesbæjar í sviðskofanum í Aðventugarðinum kl. 20:00.