Nýjast á Local Suðurnes

Missti stjórn á bifreið og hafnaði inni í garði

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Bílvelta varð í Keflavík í gærkvöld þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku og skall á steinsteypustöpul girðingar. Við þetta valt bíllinn á hliðina.

Áður hafði önnur bifreið hafnað inni í garði í Njarðvík eftir að ökumaður missti stjórn á henni í beygju. Kalla þurfti til dráttarbifreið til að fjarlægja bílinn úr garðinum.

Fleiri óhöpp hafa orðið í umferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Þannig varð útafakstur á Grindavíkurvegi og bílvelta á Sandgerðisvegi.

Ekki urðu teljandi slys á fólki í þessum óhöppum en þó þurfti að flytja ökumann síðastnefndu bifreiðarinnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.