Nýjast á Local Suðurnes

Falla frá kauptilboði í Seylubraut 1

K45 ehf. hefur fallið frá kauptilboði sínu í fasteignina Seylubraut 1. Kauptilboðið, að fjárhæð kr. 340 milljónir hafði verið samþykkt af bæjarráði Reykjanesbæjar.

Húsnæðið, sem er rúmlega 4.000 fermetrar að stærð og staðsett á um 15.000 fermetra lóð við Reykjanesbrautina verður því auglýst til sölu á ný.

Húsnæðið að Seylubraut 1 var upphaflega byggt undir trésmiðju, en Reykjanesbær hefur nýtt húsnæðið undir söfn og geymslur, auk þess sem þar var haldinn nytjamarkaður á tímabili. Brunabótamat hússins er 658 milljónir króna og fasteignamat 247 milljónir króna