Nýjast á Local Suðurnes

Leggja göngu- og hjólastíg að golfvelli

Stefnt er að því að leggja göngu- og hjólastíg frá Grindavík að golfvelli sem staðsettur er rétt utan við bæinn.

Tillaga að leiðarvali á göngu- og hjólastígnum vestur að golfvelli var lögð fram á síðasta fundi bæjarráðs og samþykkti ráðið að verja 12 milljónum króna í verkið á þessu ári.

Bæjarráð fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.