Nýjast á Local Suðurnes

Hjörtur Harðarson og Sæunn Svana blakfólk ársins 2015

Hjörtur Harðarson er blakkarl ársins 2015. Hjörtur stóðu upp úr í blaklið Keflavíkur á árinu 2015. Þessi fyrrum landsliðsmaður og margfaldur Íslandsmeistari í körfuknattleik er mjög fjölhæfur leikmaður sem í raun getur spilað hvaða stöðu sem er á vellinum. Hann nýtur sín þó best sem kant eða miðju smassari þar sem mikill sprengi- og stökkkraftur hans nýtur sín til fulls. Ósjaldan heyrast drunur í nálægum húsum þegar eitt af mörgum smössum hans geirneglast í gólf íþróttahúsa. Hjörtur býr einnig yfir sérlega góðu fingurslagi og er mjúkur og öruggur í móttökum. Uppgjafir hans eru afbragð og heyrir til tíðinda að hann skili þeim ekki á réttan stað. Hjörtur er einstaklega útsjónarsamur og les leikinn vel.

Sæunn Svana Ríkharðsdóttir er blakkona ársins 2015. Sæunn spilar sem  miðju smassari í kvennaliði Keflavíkur. Hún er frábær alhliða leikmaður. Þar sem hún er bæði frábær varnarmaður í hávörn sem lágvörn og einnig er hún öflugur smassari. Hún er drífandi og rekur liðið sitt  áfram. Hún er einnig fyrirliði kvennaliðsins sem tók þátt í sínum fyrsta bikarleik í haust. Hún átti þar frábæran leik og var stigahæsti leikmaður Keflavíkur liðsins.

Blakdeild Keflavíkur var stofnuð árið 2013 en í október síðastliðnum lék blaklið félagsins sinn fyrsta opinbera leik í keppni á vegum Blaksambands Íslands. Liðið sem lék leikinn var Karlalið Blakdeildar Keflavíkur, en liðið skellti sér í Hveragerði og lék gegn heimamönnum HSK í bikarkeppni BLÍ.