Bjóða út bílaþjónustu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Isavia hefur sagt upp samningi við Bílahótelið, en fyrirtækið hefur frá árinu 2006 þjónustað bíleigendur við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Verkefnið verður boðið út á næstunni.
„Það má segja að þetta hafi lengi legið í loftinu, en núna eru þeir búnir að segja upp samningnum við okkur,“ segir Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Bílahótelsins, í Morgunblaðinu í dag.
Haft er eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Isavia að samningur á milli fyrirtækjanna hafi í raun runnið út árið 2012, en verið framlengdur tvisvar til ársins 2014 og því hafi í raun enginn samningur verið í gildi á milli fyrirtækjanna. Þá hefur Morgunblaðið eftir Guðna að þjónustan verði boðin út í gegnum svokallað valferli á næstunni.