Nýjast á Local Suðurnes

Kynþokkafyllsta fitubolla í heimi skellir í sumarsmell

Mynd: Facebook-síða Love Guru

Kynþokkafyllsta fitubolla í heimi, Love Guru, leitar eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í að gera myndband við lag sem að eigin sögn verður sumarsmellur ársins. Ef eitthvað er að marka Fésbókarsíðu Love Guru telur kallinn að smellurinn muni setja samfélagsmiðlana á hliðina, enda verði stórkostlegir gestir með í laginu.

Love Guru er sem kunnugt er runninn undan rifjum Dodda litla, sem er svo aftur runninn undan rifjum Njarðvíkingsins Þórðar Helga Þórðarsonar, en kappinn hefur gert það gott sem stjórnandi hinna ýmsu útvarpsþátta og á skemmtistöðum landsins undanfarna áratugi.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í gerð myndbandsins er bent á að senda kappanum skilaboð í gegnum Facebook, en þar er einnig hægt að finna ýmislegt fróðlegt um Love Guru.