sudurnes.net
Kynþokkafyllsta fitubolla í heimi skellir í sumarsmell - Local Sudurnes
Kynþokkafyllsta fitubolla í heimi, Love Guru, leitar eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í að gera myndband við lag sem að eigin sögn verður sumarsmellur ársins. Ef eitthvað er að marka Fésbókarsíðu Love Guru telur kallinn að smellurinn muni setja samfélagsmiðlana á hliðina, enda verði stórkostlegir gestir með í laginu. Love Guru er sem kunnugt er runninn undan rifjum Dodda litla, sem er svo aftur runninn undan rifjum Njarðvíkingsins Þórðar Helga Þórðarsonar, en kappinn hefur gert það gott sem stjórnandi hinna ýmsu útvarpsþátta og á skemmtistöðum landsins undanfarna áratugi. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í gerð myndbandsins er bent á að senda kappanum skilaboð í gegnum Facebook, en þar er einnig hægt að finna ýmislegt fróðlegt um Love Guru. Meira frá SuðurnesjumMikilvægt að Reykjanesbær haldi vinabæjarsamstarfi áframMikið fjör þegar ljós voru tendruð á jólatrénu í GrindavíkHvaða lag vilt þú heyra yfir flugeldasýningunni? – Taktu þátt í könnuninni!Már og Ísold fá annað tækifæriHylla landsliðið við komuna til landsins – Fólk hvatt til að mæta í bláu og með fánaLandslið tónlistarmanna á KeflavíkurnóttumHaddaway hefur engu gleymt – Myndband!Heilsu- og forvarnarvika hefst í Reykjanesbæ í lok septemberYfir 50 viðburðir á dagskrá hjá menningarstofnunum ReykjanesbæjarBýður upp á ferðir á brekkusöng þjóðhátíðar í [...]