Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær lítur vel út – Hverfakeppni eykur afköst og gerir vinnuna skemmtilegri

Lið Myllubakkaskóla og lið Akurskóla unnu í liðakeppni Vinnuskóla Reykjanesbæjar, en úrslit voru tilkynnt í gær undir lok síðasta vinnudags A-tímabils. Á heimasíðu Reykjanesbæjar kemur fram að mikill keppnisandi hafi verið hjá nemendum og flokkstjórum sem leitt hefur til aukinna afkasta, auk þess að gera vinnuna skemmtilegri.

Á Facebook síðu Vinnuskólans má sjá að nemendur skólans tilheyra liðum og eru liðin merkt með myllumerki og heiti liðs. Þannig er í skólanum #teamholtaskóli, #teamheiðarskóli o.s.frv. en hóparnir kenna sig við sín skólahverfi. Þau taka myndir fyrir og eftir framkvæmdir og birta á Facebook og þannig verður til keppni þeirra á milli.

„Þetta er þriðja sumarið sem við höfum slíka keppni og auk þess að dæma eftir myndunum er líka tekið mið af því hversu afkastamikil og duglegir hóparnir hafa verið,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir skólastjóri Vinnuskólans.