sudurnes.net
FS áfram í aðra umferð Gettu betur - Local Sudurnes
Lið Fjölbrautaskóla Suðurnesja er komið áfram í spurningakeppni Gettu betur, en fyrsta umferð keppninnar hófst í kvöld. Keppnin var einungis send út á vef Ríkisútvarpsins, ruvnull.is, en ekki á Rás tvö eins og venja er. Andstæðingar FS í fyrstu umferð var lið Menntaskólans í Kópavogi og var viðureignin afar spennandi en aðeins tvö stig skildu liðin að þegar yfir lauk og endaði keppnin 21-19. Mynd: skjáskot RÚV.is / frá viðureign FS og MK Meira frá SuðurnesjumSalbjörg Ragna Sævarsdóttir til KeflavíkurKennarar og nemendur FS taka þátt í MottumarsEinn vinsælasti dagskrárliður RÚV frá upphafi í beinni frá HljómahöllLandsliðskona í knattspyrnu heimsótti nemendur afreksíþróttalínu FSSlysahelgi: Slösuðust í Innileikjagarðinum og ReykjaneshöllÞórsarar mæta í Ljónagryfjuna í kvöldBæta tæplega 20 milljónum við hvatagreiðslurBesti leikmaður Reynis genginn til liðs við VíðiJeppe Hansen semur við KeflavíkMikill viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli í morgun