Nýjast á Local Suðurnes

Stefna á að gefa reykskynjara á öll heimili í Grindavík

Slysavarnadeildin Þórkatla er að huga að brunavörnum þar sem skammdegið er skollið á og aðventan nálgast óðum. SVD Þórkatla ætlar því að gefa einn reykskynjara á hvert heimili í Grindavík, sem þiggja vill.

Málefnið er Þórkötlum hugleikið. Aðfararnótt miðvikudagsins 23. október 2019 var Sólrúnu Öldu Waldorff bjargað úr kjallaraíbúð í Mávahlíð í Reykjavík eftir að eldur kviknaði í íbúðinni. Sólrún Alda er alin upp í Grindavík, fjölskylda hennar býr hér og Þórunn Alda Gylfadóttir móðir hennar er ein af félagskonum Þórkötlu.

Félagskonur Þórkötlu verða í Nettó fimmtudaginn 4. nóvember kl. 16-19 og afhenda reykskynjara. Miðað er við að gefa 1 reykskynjara á hvert heimili sem vill og óskað er eftir að fullorðinn heimilismaður sæki. Ekki verður gengið í hús með reykskynjarana.

Fyrirspurnir má senda til Guðrúnar Kristínar formanns (gunnastina80@gmail.com) eða Rögnu ritara (ragnage@simnet.is).