Brynjar Atli og Ísak Óli taka þátt í lokakeppni EM með U17 landsliðinu
![Brynjar Atli](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/Brynjar-Atli.jpg?resize=620%2C264)
Njarðvíkingurinn Brynjar Atli Bragason og Keflvíkingurinn Ísak Óli Ólafsson hafa verið valdir í lokahóp U17 landsliðs Íslands, sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu, sem fram fer í Ísrael dagana 30. október til 7. nóvember næstkomandi.
Markvörðurinn Brynjar Atli hefur á þessu ári tekið þátt í fjórum landsleikjum með U17 ára landsliðinu. Ísak Óli hefur tekið þátt í sjö leikjum með liðinu og skorað í þeim 1 mark.