Nýjast á Local Suðurnes

Brynjar Atli og Ísak Óli taka þátt í lokakeppni EM með U17 landsliðinu

Njarðvíkingurinn Brynjar Atli Bragason og Keflvíkingurinn Ísak Óli Ólafsson hafa verið valdir í lokahóp U17 landsliðs Íslands, sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu, sem fram fer í Ísrael dagana 30. október til 7. nóvember næstkomandi.

Markvörðurinn Brynjar Atli hefur á þessu ári tekið þátt í fjórum landsleikjum með U17 ára landsliðinu. Ísak Óli hefur tekið þátt í sjö leikjum með liðinu og skorað í þeim 1 mark.