Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær fékk góða gesti í heimsókn frá vinaborginni Xianyang í Kína

Sex fulltrúar frá vinaborg Reykjanesbæjar Xianyang í Kína komu í heimsókn í síðustu viku. Meðal þess sem hópurinn hafði áhuga á að skoða og kynna sér var Hitaveita Suðurnesja en í Xianyang hafa verið gerðar ýmsar áhugaverðar tilraunir  með nýtingu jarðvarma til húshitunar.

Í Xianyang búa um 5 milljónir manna og í borginni er einn stærsti alþjóðafluvöllur Kína. Auk þess að kynna sér starfsemi Reykjanesbæjar var áhugi Kínverja á að koma á beinu flugi á milli flugvallarins í Xianyang og Keflavíkurflugvallar.

Til þess að kynna sér hitaveituframkvæmdir á svæðinu var starfsemi Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi heimsótt og tók Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku á móti hópnum. Hann sagði m.a. frá því sem fyrirtækið hefur verið að gera á undanfönum fjórum áratugum.

Með Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á myndinni er Chen Junfeng varaborgarstjóri Xianyang. Forsvarsmönnum Reykjarnesbæjar var boðið að endurgjalda heimsóknina til Xianynag.

kinaheimsokn2