Nýjast á Local Suðurnes

Silja Dögg í öðru sæti á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi

Núverandi þingmenn Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi.

Silja Dögg Gunnarsdóttir mun skipa 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í haust, en hún skipaði fjórða sæti listans fyrir síðustu kosningar. Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, leiðir lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi.

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust var einróma samþykktur á kjördæmisþingi KSFS á Hótel Selfossi í dag.

Listinn í heild sinni

1. Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra

2. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður

3. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunastjóri

4. Einar Freyr Elínarson, ferðaþjónustu- og sauðfjárbóndi

5. Sæbjörg Erlingsdóttir, Grindavík

6. Gissur Jónsson, Selfoss

7. Hjörtur Waltersson, Grindavík

8. Lára Skæringsdóttir, Vestmannaeyjum

9. Guðmundur Ómar Helgasson, Rangárþing Ytra

10. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Höfn

11. Stefán Geirsson, Flóahreppi

12. Jón Sigurðsson, Sandgerði

13. Hrönn Guðmundsdóttir, Ölfusi

14. Ármann Friðriksson, Höfn

15.  Þorvaldur Guðmundsson, Selfoss

16. Sigrún Þórarinsdóttir, Rangárþingi Eystra

17. Jóhannes Gissurarson, Skaftárhreppi

18. Sæbjörg M. Vilmundsdóttir, Grindavík

19. Haraldur Einarsson, Flóahreppi

20. Páll Jóhann Pálsson, Grindavík