Vel heppnað Evrópumeistaramót í bekkpressu var haldið í Njarðvík
![Evropumot bekkpressa massi](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/29050332476_ab94d1bddd_b.jpg?resize=620%2C264)
Evrópumeistaramót í bekkpressu var haldið um helgina í íþróttahúsinu í Njarðvík. Lyftingadeild UMFN, Massi, sá um framkvæmd mótsins sem heppnaðist einstaklega vel.
Um er að ræða langstærstu keppni í kraftlyftingum sem haldin hefur verið á Íslandi, en ríflega 200 keppendur frá aðildarfélögum Evrópska kraftlyftingasambandsins tóku þátt í keppninni.
Á lokahófinu talaði fulltrúi Evrópska Kraftlyftingasambandsins og varafoseti alþjóða Kraftlyftingasambandsins um það að nýir staðlar hefðu verið settir í móttsumgjörðinni sem er ekki litið fyrir þá sem til þekkja í alþjóða kraflyftingaumhverfinu, segir á heimasíðu Massa. Keppendur,þjálfarar,dómarar og embættisfólk víðsvegar frá Evrópu hrósuðu Massafólki fyrir vel unnin störf og frábært mót í alla staði.
Hér má sjá fjölda ljósmynda frá mótinu.