Nýjast á Local Suðurnes

Flugfarþegi lést

Flugvél sem var á leið frá Amsterdam í Hollandi  til New York í Bandaríkjumum var lent á Keflavíkurflugvelli vegna veikinda farþega síðastliðinn fimmtudag.   Lögreglumenn á Suðurnesjum ásamt sjúkraflutningamönum og lækni fóru um borð.  Farþeginn var úrskurðaður látinn skömmu síðar.

Um var að ræða erlendan ferðamann og hafði lögreglan á Suðurnesjum samband við bandaríska sendiráðið vegna þessa .