Nýjast á Local Suðurnes

Fótboltinn skilaði hagnaði í Vogum

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar Vogum var haldinn þann 21. febrúar síðastliðinn. Gunnar Helgason var endurkjörinn formaður deildarinnar sem skilaði hagnaði á liðnu ári.

Dagskrá aðalfundar var hefðbundin samkvæmt lögum félagsins. Gunnar J. Helgason, formaður knattspyrnudeildar, flutti skýrslu um starfsemi liðins árs. Hann fór vítt og breitt yfir verkefni deildarinnar, rekstur hennar og þann frábæra árangur sem átti sér stað á síðasta ári. Félagið verður 90 ára í haust og frábært að félagið spilar í Lengjudeild á tímamótunum.

Lagðir voru fram reikningar deildarinnar, en þar kom fram að deildin var rekin með hagnaði á liðnu ári. Hagnaður var um 800.000 kr.

Gunnar var endurkjörinn formaður knattspyrnudeildar. Sex aðrir stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram. Gísli Brynjólfsson, Kristinn Jón Ólafsson, Gísli Sigurðarson, Róbert Ragnarsson, Guðmann R. Lúðviksson og Friðrik V. Árnason.