Nýjast á Local Suðurnes

Lifun flutt í heild sinni á tónleikum í Hljómahöll í kvöld

Einvalalið tónlistarmanna mun flytja tónlist hljómsveitarinnar Trúbrot í Hljómahöll í kvöld. Á tónleikunum verður meðal annars eitt helsta meistaraverk íslenskrar tónlistarsögu, platan Lifun, flutt í heild sinni en á árinu verða liðin 45 ár frá því platan kom út.

Meðlimir Trúbrots, þeir Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson, skipa hljómsveitina ásamt frábærum hópi tónlistarmanna og söngvara sem munu án efa gera kvöldið ógleymanlegt.

Fram koma:
Magnús Kjartansson, píanó/söngur
Gunnar Þórðarson, gítar/söngur
Stefán Jakobsson, söngur
Andri Ólafsson, söngur
Stefanía Svavarsdóttir, söngur
Eyþór Gunnarsson, orgel
Gulli Briem, trommur
Pétur Grétarsson, slagverk
Friðrik Karlsson, gítar
Jóhann Ásmundsson, bassi